Skógar Viðar Bróðir

Lifandi List úr Íslenskri Náttúru

Um Listamanninn

Álfgrímur er sjálfstætt starfandi listamaður sem vinnur alfarið með Íslenskt timbur, sem hann hyrðir úr starfi sýnu sem trjáfellingar-maður. Timbrið er að mestu úr einkagörðum, fyrirtækja- og ríkis-lóðum ásamt timbri bjargað úr förgunar haugum.

Efni Viður

Allt timbur sem ég vinn með er fellt af mér eða bjargað af haugum á höfuðborga-svæðinu. Helstu trjátegundir eru :

Birki (Betula Pupens) – Algengasta trjátegund á Íslandi. Flest íslenskt birki vex kræklulega og því erfitt að skera út, en áferðinn og mynstin í viðinum bera hann eftirsóttan í skálar og mataráhöld.

Reynir (Sorbus) – Algengastur er garðareynir, en við notum líka koparreyni, úlfareyni, silfurreyni og aðra blendinga.

Gullregn (Laburnum) – Einstaklega harður og fallegur viður, eftirsóttur til að gera skálar og rúllupinna.

Hlynur (Acer) – Frekar einsleitur og fölur en beinvaxinn og þéttur. Frábær til gerðar mataráhalda og stærri skálar.

Beyki (Fagus) – Harðgerður viður, frábær til gerðar á slit-sterkum verkfærum.

Elrir (Alnus) – Skildur birki, en bein-vaxnari og léttari. Frábær til gerðar mataráhalda.